Fréttir

Fjöreggið – Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands 15. maí 2025
Árlega veitir Öldrunarráð Íslands sérstaka viðurkenningu sem kallast Fjöreggið til einstaklings, stofnunar eða félagasamtaka sem hafa unnið einstakt starf tengt málefnum eldra fólks.
Stjórn Öldrunarráðs ákvað að veita Rannveigu Guðnadóttur viðurkenninguna og Fjöreggið fyrir árið 2024. Rannveig er stofnandi og verkefnastjóri Eden Alternative á Íslandi. Rannveig er hjúkrunarfræðingur með Diplóma í Stjórnun, MSc í kennslu og öldrunarfræði. Hugsjón Rannveigar er að vellíðan sé sett í fyrsta sæti þeirra einstaklinga sem þurfa þjónustu og stuðning sem og þeirra sem þjónusta og styðja aðra.
Það er óvæntur heiður að fá Fjöreggið, viðurkenningin er frábær hvatning fyrir Eden starfið á Íslandi sem fagnar 15 ára afmæli sínu í ár. Eden alþjóða samtökin í Bandaríkjunum fögnuðu 30 ára afmæli sínu á síðasta ári með veglegri ráðstefnu og við á Íslandi stefnum á að halda upp á 15 ára afmælið 12. September með málþingi í Reykjavík.
Eden fjallar um mikilvægi tengsla og leggur áherslu á að sameina starfshópa og fagstéttir um ákveðna sýn og markmið til að efla vellíðan þeirra sem þjónustu þarfnast og þeirra sem veita þjónustuna. Að horfa á styrkleika hvers og eins skiptir máli til að ná árangri hvort sem við erum veitendur eða þyggjendur þjónustunnar.

Málþing Eden Íslandi og Miðstöðvar í öldrunarfræðum

Þekking til framtíðar – Lífsgæði í forgrunni – Persónumiðuð umönnun Fögnum 15 ára afmæli Eden á Íslandi og nýrri Miðstöð í öldrunarfræðum. Málþing verður haldið að tilefni þessara tímamóta þann 12. september kl. 9:30-15:30 – Hótel Natura Reykjavíkurvegur 52, 101 Reykjavík Allt fagfólk og starfsfólk sem starfar við heilbrigðis- og öldrunarþjónustu er sérstaklega velkomið ásamt […]

Málþing Eden Íslandi og Miðstöðvar í öldrunarfræðum Lesa meira »

Íbúar og aðstandendur

Samráðsdagur Eden heimila 2. nóvember 2023

GERUM GOTT BETRA Samráðsdagur Eden heimila verður haldinn 2. nóvember 2023 frá kl. 10.00 til 15.00 á Nauthól við Nauthólsveg 106, 101 Reykjavík. Árlegur samráðsdagur Eden heimila er ætlaður formlegum og óformlegum leiðtogum sem starfa á Eden hjúkrunarheimili. Fundarstjóri er Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdarstjóri Brákarhlíðar Dagskrá: 10.00 – 10.15  Setning – Rannveig Guðnadóttir verkefnastjóri 10.15

Samráðsdagur Eden heimila 2. nóvember 2023 Lesa meira »

Fréttapistill febrúar 2022

Eden Ísland fagnar því að samfélög eru að opnast á ný og áætlar að hefja námskeiða-starfsemi uppúr miðjum marsmánuði. Námskeið eru skipulögð í samstarfi við hjúkrunarheimili sem óska eftir að fá til sín námskeið í formi netfræðslu eða viðveru, og opin pláss eru í boði á námskeiðum á norður- og sunnanlands. Fastir samráðsfundir Eden-heimila eru haldnir

Fréttapistill febrúar 2022 Lesa meira »

Scroll to Top